Lokaþáttur
Þetta er seinasti þáttur Heimavistarinnar. Sigyn, Haffi og Sævar þakka fyrir sig á fjörugan og skemmtilegan hátt.
Það er Íslandsþema í dag og Haffi og Sigyn velta fyrir sér íslenskunni og öðrum tungumálum. Við kíkjum á draugasafnið á Stokkseyri, leitum að Eiríki rauða, kynnum okkur Njálu og heyrum frá Elízu Reid forsetafrú hvernig hennar Íslandsævintýri byrjaði og hvernig það var að læra íslensku.
Umsjónarmenn: Sigyn Blöndal og Hafsteinn Vilhelmsson
Á meðan að samgöngubanni stendur þá verður Heimavistin á MenntaRÚV opin alla virka daga frá 09:00-11:00.
Umsjón: Sigyn Blöndal, Sævar Helgi Bragason og Hafsteinn Vilhelmsson.
https://www.menntaruv.is